miðvikudagur, ágúst 17, 2005 :::
Framkvæmdaglaðir nágrannar....
Það þarf náttúrulega eh sérstakt að gerast til að maður drífi sig að henda inn einu bloggi eða svo... Maður er semsagt aumingi heima með lungnabólgu (væga) og grannarnir sem keyptu íbúðina fyrir ofan okkur í apríl eru enn með íbúðina í extreme makeover... meeeennn frekar þreytt að eyða ca hálfu ári í þetta. Samkvæmt heimildum hinna nágrannana (þeirra sem eru aðeins hnýsnari en við...) var íbúðin gerð fokheld. Allt rifið út og allt á að verða "spikk og span", sem væri allt í lagi nema þegar maður liggur einn heima með pest og hausverk. En það þýðir ekki vera kvartari heldur skellla sér í gleðibrækurnar (?!? er það ekki rétta hugarfarið Þóra??) og gera gott úr þessu, allavega getur maður horft á sjónvarpið með hljóðstyrk 50 (normið er ca 21).
Við erum náttúrulega nýkomin heim úr brill fríi, þar sem lokahnykkurinn var tekinn á Vertigo 2005... efast um að við munum endurtaka þetta í bráð, en þetta var samt mjög gaman. Sérstaklega var gaman að fara og hitta Þóru, Hákon og Bjössa í Gautaborg og svo Sóley í Köben. Það sem stendur uppúr fríinu er að við Gummi duttum í lukkupottinn og fengum sitthvoran "æðishlutinn" hehehe ég fékk risa kex og Gummi fékk gítarbassanögl frá goðinu Adam Clayton :)
Svo í júlí fórum við í brúðkaup hjá Þórey og Ella og var það bara æðislegt :)
Dí maður verður greinilega að blogga reglulega... því ég er alveg búin að gleyma helmingnum af því sem að ég er búin að vera að lenda í/gera hehe.
Annars bara puss&kram og ég ætla að láta mér batna asap því að hanga heima í hamarshöggum og látum er frekar súrt....
::: posted by Bryndis at 2:49 PM
mánudagur, maí 23, 2005 :::
Afmæli, Júróvisíon, golfkeppni og Star Wars...
Alltaf nóg að gera hérna megin...
Helgin byrjaði vel á fimmtudaginn með keppni í fyrsta golfmótinu, reyndar sem súkkulaðispilari eeennn samt mjög gaman. Eftir golfmótið var brunað í bæinn (golfmótið var haldið í Þorlákshöfn) og skellt sér í Forkeppnisjúróvision partý hjá Heiðu. Þetta átti nú bara að vera upphitun fyrir Selmuna en því miður... þá komst hún ekki áfram (var í 16 sæti).
Á föstudaginn var skellt sér í 11 bíó til að sjá Star wars, mynd sem margir eru búnir að vera bíða eftir. Það mátti reyndar merkja að fólk gerði nánast hvað sem er til að komast og sjá myndina sem fyrst, t.d. var par þarna með tæplega 2 ára gamalt barn (efast um að það sé búið að sjá fyrri&seinni myndirnar...), illa lyktandi flíspeysutölvunördasvitafýlugaurar (ekki gaman að vera að kremjast upp við þá í troðningnum um góð sæti...) og svo ég sem að er vanalega ekki að vaka til 01:35 yfir mynd. En myndin var fín og raunar miklu betri en mynd I og II þannig að maður gat farið sáttur heim.
Á laugardaginn var svo afmælishátiðin mikla hjá Kristó, þar sem hann var að fagna 4 ára afmæli. Fyrra afmælið sem var stólað inn á krakka var ágætis getnaðarvörn fyrir hina gestina. Um kvöldið var svo farið í Júróvisíonpartý hjá Unni og svo í partý til Páls Óskars á Nasa og voru sumir félagarnir lengi fram eftir í fullu fjöri. Ég tók einmitt leigara heim uppúr 3 og var kvöldið bara frábærlega heppnað :) Gaman að sjá ICY flokkinn taka Gleðibankann... enda ætlaði þakið að rifna af kofanum þegar þau tóku lagið.
Þangað til seinna...
Ciao
::: posted by Bryndis at 3:55 PM
þriðjudagur, maí 17, 2005 :::
Frestun á Franz...
Meeeennnn og ég sem var orðin súper spennt fyrir að sjá kappana í annað sinn, maður verður víst að láta sig hafa það að bíða fram á haustið til að sjá þá.
Það sem er helst í fréttum hérna er að golfferillinn er í þann mund að hefjast. Eftir 2 byrjendanámskeið hlýtur maður að fara að vera til í slaginn... og það er ekki seinna vænna, því að það er tournament á fimmtudaginn :)
Annars er bara allt við sama heygarðshornið hérna...
Dagga laug að mér að einhver sem hún kannaðist við hefði skýrt barnið sitt Línus Gauti og mér fannst það fallegt, þar til að ég fattaði hversu undarlegt það hljómar þegar maður segir það hratt.
Þetta blogg er nú að mestu skrifað fyrir Þóru Uppsalapíu, enda er ekki við því að búast að einhverjir aðrir villist hérna inn :) Þannig að kanski er hægt að skemmta sér við það að telja niður í Svíþjóðarreisuna sem verður farin seinni part júlí...
Ég ætla að skella mér að horfa á eitthvað sniðugt þar sem að Gummi er endalega búin að gera mig að Grasekkju með því að vera að þvælast á fullt af fótboltaleikjum. Hann þykist hafa mjög löglega afsökun núna þar sem hann er orðinn blaðamaður
á Sport.is og verður að vera í blaðamannastúkunni á sem flestum leikjum.
Ciao
::: posted by Bryndis at 7:22 PM
miðvikudagur, febrúar 16, 2005 :::
Inniveður...
Og ég sem er að fara að spila golf í kvöld... sem betur fer er það inní Sporthúsi.
Maður ætti svo sem ekki að kvarta, manni hefði ekki verið hlátur í huga ef maður hefði lent í þessum aðstæðum.
Lítið að frétta, nema að ég skellti mér í ljós í gær og ég er búin að komast að því að ég er alveg búin að tapa niður ljósaþolinu sem maður var búinn að koma sér upp (þegar maður var upp á sitt "besta"), allavega er svona hálfgerður "red face" dagur.
Það er ein kona alltaf í gyminu á sama tíma og ég (reyndar erum við ekki bara tvær... miklu fleiri) og gellan er í KÍNASKÓM í gyminu, nánar tiltekið svörtum kínaskóm með rauðum blómum, ég er ekki alveg að ná þessu.
Annars er bara skemmtilegheit framundan, afmæli, London, borðtennismót í vinnunni og margt fleira :)
Hörs Bryndís
::: posted by Bryndis at 1:18 PM
þriðjudagur, febrúar 01, 2005 :::
Long time no see....
Jamensan hvað maður er búinn að vera latur við að blogga... reyndar ekki mikið búið að vera að gerst. Þangað til núna upp á síðkastið :) Keyptum bíl í dag, keyptum flugmiða um daginn og svo er bara allt á blússandi siglingu :)
Aftur að bílnum... Keyptum notaðan VW Boru sem að Nonni reddaði okkur, svaka drossía :) Gummi er núna allt í einu orðinn æstur í að skutla mér í vinnuna... ég sem hef þurft að skutla honum í vinnuna síðustu mánuðina.
Svo er búið að setja stefnuna á Road trip í Englandi í júní... og hver veit nema að einhver fleiri ferðalög bíði manns :)
Jæja best að fara að koma sér að verki... er enn í vinnunni og á eftir að vinna slatta í dag vegna bílakaupafjarveru...
---------------
Fyndin mynd
::: posted by Bryndis at 3:44 PM
föstudagur, desember 17, 2004 :::
Busy days...
Alltaf nóg að gera... náði að elda mexico veislu single handed á ca 40 mín í gær. Tilefnið var að Þórey, Stella og Dagga voru að koma í heimsókn. Þórey og Stella komu með strákana sína (Þórey með 2 og Stella með 1).
Fór svo í Bíó á National Tresures... sem var svona lala alltí lagi afþreying en engin Indiana Jones eins og var búið að gefa í skyn.
Annars er bara lítið í fréttum... stórvirki helgarinnar bíður (skrifa um það eftir helgi) og verður spennandi að sjá hvernig það tekst til.
Hvað er annars málið með svitafýlufólk í gyminu... það hlýtur að geta drullað fötunum sínum í þvott og skellt sér í sturtu >:(
::: posted by Bryndis at 8:02 AM
fimmtudagur, desember 09, 2004 :::
YESSSSSSSSSSS....
Frábært kvöld í gær :) Mun brosa allan hringinn lengi vegna þessa og nammibindindið til jóla er alveg þess virði (smá hjátrú hérna megin)
You'll never walk alone :)
::: posted by Bryndis at 10:17 AM